Bolli Valgarðsson hefur starfað við almannatengsl og upplýsingaráðgjöf í nálega þrjá áratugi, lengst af hjá KOM - kynningu og markaði, þar sem hann hóf störf með Jóni Hákoni Magnússyni eiganda félagsins í janúarbyrjun 1992 að loknu námi við HÍ. Bolli hóf rekstur Skarfavíkur - almannatengsla og ráðgjafar í septemberbyrjun 2025.
Þjónusta
Hagsmunagæsla
Hagsmunagæsla með vöktun fjölmiðla og rýni umræðu sem snerta hagsmuni viðskiptavina.
Ráðgjöf
Ráðgjöf vegna samskipta við stjórnsýslu.
Ráðgjöf í krísum og krísustjórnun.
Ráðgjöf á sviði ímyndarmála (uppbygging og viðhald).
Útsýnis- og vettvangsferðir
Útsýnis- og vettvangsferðir með samstarfsaðila viðskiptavina (einkabíll eða rúta).
Samskipti
Samskipti við blaða- og fréttamenn og eftir atvikum þáttastjórnendur.
Umsjón
Umsjón m/prentaðri útgáfu blaða og tímarita, þ.á.m. samskipti og gerð samninga við umbrotsaðila, ljósmyndara, auglýsingastofur og prentsmiðjur.
Yfirlestur
Yfirlestur texta fyrir útgáfur, s.s. árs- og áfangaskýrslur.
Fréttatilkynningar,
greinar ofl.
Aðstoð við samningu fréttatilkynninga, erindisbréfa og yfirlýsinga til fjölmiðla eða opinberra eftirlitsstofnana.
Aðstoð við samningu blaðagreina.
Samning frétta fyrir heimasíður og innslög (færslur) á samfélagsmiðla viðskiptavina.
Samstarf
Samstarf við erlend PR fyrirtæki vegna verkefna sem snerta Ísland.